Jæja, nú er víst komið nýtt ár, og þá er víst til siðs að gera upp gamla árið...
Janúar: Ég var orðin ansi þung á mér og þreytt. Var að rembast við að mæta í meðgöngujóga, sem að virkaði lítið sem ekkert fyrir mig. Var búin að minnka heilmikið við mig vinnu.
Febrúar: Var mikið farin að hlakka til að fá litla krílið mitt í hendurnar. Allt orðið tilbúið. Mamma átti afmæli þann 10unda og þá fór Sigurþór í námsferð til Danmerkur, hann gerði sér ferð þaðan til Svíþjóðar og keypti vagn handa barninu.
Mars: Var óstjórnlega lengi að líða. Þann 9. mars var síðasti vinnudagurinn minn. 10unda var árshátíð Símans og mættum við hjúin hress og kát í góðan mat.
Pabbi hefði orðið 49 ára þann 22. mars og langaði mig dálíð að fá krílið í hendurnar þann dag, en prinsessan vildi sinn dag alein og fæddist 28. mars. Foreldrunum til mikillar lukku
Apríl: Drifum okkur og skírðum barnið þann 7. apríl og fékk hún hið fallega nafn Áróra Líf. Svava systir átti afmæli þann dag og fékk hún að halda á henni undir skírn. Mæður okkar Sigurþórs voru skírnarvottar. 12. apríl varð Óðinn 15 ára. Anna rs var apríl mánuður einkennandi af kúri og notalegheitum með litla barninu okkar.
Maí: Drifum okkur á Hornafjörð þan 17. maí til að vera við fermingu Rafns Svans og til að sýna Áróru . Hún fékk næga athygli. Gistum í Lóninu í uppáhalds sumarbústanum okkar.
Júní: Fórum í sumarbústað með Stjána, Viggu og Katrínu Mey um sjómannadagshelgina. Það var voða notalegt. Ég átti afmæli þann 26. júní og var það stórafmæli. 25 ára! Hvorki meira né minna! Héldum smá kökuboð fyrir fjölskylduna. Kannski verður bara partý á þessu ári
Byrjaði að fara í Bowen tíma hjá mömmu hennar Hjördísar því að bakið á mér var að drepa mig. Átti orðið erfitt með gang og allar hreyfingar bara. Rek það til meðgöngunnar og fæðingarinnar. Þyngdist mikið og þetta var bara mikið líkamlegt álag.
Júlí: Hélt áfram að vera í bowen sem að virkaði upp að vissu marki, en var því miður ekki nóg.
Fórum í brúðkaup hjá Ella og Dögg 070707.
Afi Árni varð áttræður þann 10. Við áttum 1 árs brúðkaupsafmæli þann 15. Fórum í brúðkaup hjá Agnesi og Ágústi þann 21. júlí. Við Áróra fórum í sumarbústað með ömmu Dísu og afa Silla og vorum með þeim í hálfa viku. Sigurþór kom svo og var í eina nótt með okkur.
Ágúst. Fórum til Hafnar í sumarfrí. Vorum í 10 daga í þvílíkri sælu í bústaðnum okkar elskaða. Hittum fjölskylduna og nutum lífsins. Fór loksins til læknis eftir að við komum heim sem að var þvílíkt dónalegur, sagði bara að ég þyrfti að hreyfa mig! (Ég gat það ekki vegna verkja, og sem betur fer var ég nógu ákveðin að segja það
hann skrifaði upp á tíma hjá sjúkraþjálfara, hálfgert með semingi. Helvítis fíflið!! En ég fór svo til sjúkraþjálfara sem að var þvílíkt yndislegur og útskýrði fyrir mér hvað væri að. Hjálpaði mér að finna æfingar sem að hentuðu mér og til að byggja upp vöðva í mjóbakinu. Ég gat loks farið að hreyfa mig án þess að þurfa að æpa af sársauka! Ég hélt í alvöru talað að það yrði ekkert hægt að gera fyrir mig. Að ég yrði öryrki eða eitthvaðL
Áróra Líf var greind með astma þann 30. ágúst. Á ársafmæli dánardægurs föður mínsL
September: Byrjuðum með Áróru í ungbarnasundi. Það er ekkert smá gaman. Erum enn með hana þar. 1sta tönnin hennar fannst 16. september af ömmu hennar, Þóru. Fórum með Áróru til ofnæmislæknis og var hún greind með mjólkuróþol.
Október: Fórum með Áróru í myndatöku hjá Brosbörnum. Dóttir mín er sko fædd ljósmyndafyrirsæta
Nóvember: fórum í Halloween partý hjá Daða og Hjördísi. Áróra var í sinni fyrstu næturpössun, var hjá mömmu. Það var rosa gaman
Áróra byrjar að skríða. Fórum í sumarbústað með Grjótaselsgenginu.
Desember: fór með Svövu og vinnunni hennar og við nældum okkur í dýrindis jólatré. Fórum í árlegt Lions jólaboð með fjölskyldunni hans Sigurþórs, Áróra skemmti sér konunglega! Áróra hélt upp á sín fyrstu jól og þau voru yndisleg, vorum í Grjótaselinu. Svo voru tvö jólaboð á jóladag, hjá Þóru Ásu og svo ömmu Dísu.
áramótin voru svo haldin hátíðleg í Hafnarfirðinum, heima hjá mömmu.
Samantekt: Árið 2007 var yndislegt í alla staðiJ Vona að 2008 verði eitthvað í líkindum við það